SPRIKL VIKUNNAR - BADMINTON!!

Sett inn 7th Sep 2017 14:53:00 í Almennt

Páll Axel Sigurðsson U15 Sveinn ánægður með gullið.

 

BADMINTON BABY!!!!

Sæl öll kæru vírar! Það er komið að BADMINTONI í spriklinu!!!

Við spriklum eins og vanalega frá kl. 14:15 til 15:00 í íþróttahúsi háskólans. Þetta er fullkomin upphitun fyrir Áttuna (oktoberfest) og vill fréttaritari líka ítreka það að hún hvetur nýnemana eindregið til þess að skrópa í dæmatíma og hressa sig frekar við í spriklinu í góðum félagsskap. OMG svo er líka vísó þarna á milli spriklsins og áttunnar hversu góð pæling!!!!

Erum við ekki öll spennt????
Fréttaritari er allavega mjög spennt því það leynast nokkrar fyrrverandi badmintonstjörnur á meðal okkar! Eins og sést hér að ofan var Páll Axel Sigurðsson ansi efnilegur badmintonspilari hér í denn en fréttaritari fann því miður bara eina mynd af þessum flotta sveini :(
Guðrún Ólafsdóttir betur þekkt sem rafmagns gudda var líka helvíti efnilegt eintak í denn og fréttaritari fann einmitt nokkrar alslæmar af henni sem hún lætur fylgja hér með að neðan, njótið!

p.s. minni á að dagskráin fyrir föstudaginn er svona: SKOLI-LÆRA-SPRIKLA-GMT-VÍSÓ-ÁTTAN

og fréttaritari vill koma því á framfæri að DFK þýðir deyja fyrir klúbbinn en ekki deep french kissing eins og margir hafa sent fyrirspurn um á frettaritarivir@gmail.com


Íslandsmeistari í einliðaleik, hress og kát með það auðvitað!


Þrefaldur Siglufjarðarmeistari strike a pose.

Kjellan íþróttamaður ársins í Fjallabyggð og bara helviti sátt með það.

 

Okkar kona að prakkarast, þarna þekkjum við hana!