Liðsandi vikunnar 2

Sett inn 1st Sep 2017 17:09:54 í Almennt

Mótherjar takast í hendur eftir drengilega keppni.

 

Fréttaritari VIR hefur ákveðið að veita blakliði 2.árs liðsandaverðlaun vikunnar!
Liðið var skipað árna íþróttamanni, rafmagns guddu og smelly melly en þau stóðu sig eins og hetjur á móti fyrnasterku liði 3. árs sem var skipað þeim bjarka og alexander blakmanni mikla.
Það var áberandi hvort liðið á vellinum var með hugarfarið í lagi þó úrslitin hafi ekki verið þeim í hag en eins og við vitum öll skipta úrslitin ENGU máli ef hausinn er rétt skrúfaður á! Og hann var það svo sannarlega hjá öðru árinu en þau skildu allt eftir inná vellinum og DÓU fyrir klúbbinn!!!! þannig núna er það bara að GMT og svo VÍSÓÓÓÓOÓ!!!!!!

Það verður spennandi að sjá hvort 1. árið mæti með lið til leiks í næsta sprikl en fréttaritari vill einmitt nýta tækifærið og hvetja þau til að skrópa í dæmatíma!!!!!!"!!!!!!!!! Þau fá samt séns á að hreppa liðsandatitil næstu viku þó þau mæti ekki EF amk fjórir nýnemar lykla bjór fyrir framan stjórnarráðið... en meira um það seinna.

Ástarkveðjur