20. November 2009

Sóttu um að komast á BEST vetrarnámskeið.
Opnað hefur verið fyrir umsóknir á vetrarkúrsa BEST. Farðu hingað til að fá leiðbeiningar um hvernig þú sækir um. Umsóknarfrestur er til 25. október næstkomandi.

Taktu þátt í BEST ævintýrinu á Íslandi ... og út um alla Evrópu!
BEST á Íslandi er að leita af góðu fólki til að taka þátt í þeim spennandi og skemmtilegu verkefnum sem eru á döfinni! Hafið samband með tölvupósti (reykjavik@BEST.eu.org) eða náið tali af okkur á göngum skólans.

Hver er tilgangur BEST?
Tilgangur BEST er í stuttu máli að stuðla að aukinni tæknimenntun, skapa öflugt tengslanet í Evrópu og kynna mismunandi tungumál, þjóðir og menningu fyrir stúdentum. Líka er ljóst að fyrirtæki nútímans vinna sífellt meira utan landsteinanna og því er mikilvægt að ungt fólk verði betur í stakk búið til að vinna í alþjóðlegu vinnuumhverfi. Á atburðum BEST lærir fólk að vinna í alþjóðlegum hópum, sigrast á tungumálaerfiðleika og öðlast reynslu í að leysa þau vandamál og verkefni sem upp koma. Til að ná sem bestum árangri þarf líka að vera gaman, enda er hinn svokallaði BEST-andi (e. BEST-spirit) engu líkur og alsráðandi á öllum viðburðum samtakanna.
2009 © Víðfari - BEST á Íslandi